23 Desember 2020 19:03
Frá 1. janúar 2021 munu breskir ríkisborgarar, sem í dag njóta frjálsrar farar sem ríkisborgarar EES/EFTA svæðisins, teljast til þriðju ríkis borgara þegar aðlögunartímabili vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og þar með Evrópska efnahagssvæðinu lýkur þann 31. desember 2020.
Þetta þýðir að frá áramótum munu þá þær reglur sem gilda um komu þriðju ríkis borgara einnig ná til komu breskra ríkisborgara. Það á einnig við ferðatakmarkanir vegna COVID-19 en samkvæmt þeim verður breskum ríkisborgurum þá aðeins heimilt að ferðast til Íslands falli þeir undir tilteknar undanþágur fyrir þriðja ríkis borgara á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi.
Mikilvæg undantekning verður hins vegar í gildi fyrir breska ríkisborgara (og fjölskyldumeðlimi þeirra) sem hafa fasta búsetu á Íslandi eða eiga hér dvalar- eða búseturétt fyrir 31. desember 2020. Þessir einstaklingar munu halda þeim réttindum sínum frá og með 1. janúar 2021 í samræmi við samning sem undirritaður var af EES/EFTA-ríkjunum og Bretlandi um útgönguskilmála. Þessir bresku ríkisborgarar (og fjölskyldumeðlimir þeirra) geta því enn ferðast til og frá Íslandi og ferðatakmarkanir vegna COVID-19 eiga ekki við um þá. Þar til íslensk stjórnvöld hefja útgáfu nýrra dvalarskírteina fyrir breska ríkisborgara sem eiga hér dvalar- eða búseturétt fyrir 1. janúar 2021 þá er mælt með því að breskir ríkisborgarar sem búsettir eru hér á landi og hyggjast ferðast yfir landamærin sæki um búsetutímavottorð (C-122) hjá Þjóðskrá til sönnunar á dvalarrétti hér á landi. Vottorðið er hægt að fá rafrænt og tekur um tvo virka daga í afgreiðslu.
Á heimasíðu Útlendingastofnunar er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir breska ríkisborgara, m.a. spurt og svarað um hvernig Brexit mun hafa áhrif á breska ríkisborgara sem búa á Íslandi.