22 September 2017 09:36
Tæplega fertugur ökumaður sem mældist aka á 141 km hraða á Reykjanesbraut í gær hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta var í annað sinn sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum undir stýri.
Auk hans hefur lögregla kært 14 ökumenn fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 164 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þess ökumanns bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Loks voru fjórir ökumenn handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur.