1 Febrúar 2012 12:00
Eins og kunnugt er voru þrír litháiskir ríkisborgarar handteknir þann 27. október s.l. við framleiðslu rúmlega 374 gramma af kókaíni í sumarbústað í Ölfusborgum. Einn þeirra kannaðist við að eiga efnin og hefur hann sætt gæsluvarðahaldi frá því hann var handtekinn, utan skamms tíma sem leið frá því Héraðsdómur hafnaði kröfu lögreglustjórans á Selfossi um framlengingu á gæslu en úrskurðaði hins vegar um að maðurinn skyldi sæta farbanni. Hæstiréttur sneri þeim úrskurði við og var maðurinn settur í gæsluvarðhald í framhaldi af þeim úrskurði.

Hinir tveir, annar búsettur hér á landi, en hinn gestkomandi hér könnuðust ekki við að hafa vitað eða tekið þátt í framleiðslunni. Þeir sættu gæsluvarðhaldi fram til 4. október en eftir það farbanni skv. úrskurði Héraðsdóms þar um. Dómur gekk í málinu þann 30. desember s.l. og voru þremenningarnir allir sakfelldir. Sá er kannaðist við að eiga efnin fékk 15 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm en hinir 10 mánuði, einnig óskilorðsbundið. Þeir áfrýjuðu þessum dómum til Hæstaréttar. Áfram sat höfuðpaurinn í gæsluvarðhaldi og situr enn en farbann hinna hefur verið framlengt, nú til 23. mars n.k. eða þar til dómur gengur í Hæstarétti.
Þeim tveimur sem sættu farbanni var gert að mæta reglulega á lögreglustöð og staðfesta veru sína á landinu. Sá sem búsettur er hér á landi hefur gert það samviskusamlega en sá sem var hér gestkomandi mætti þann 13. janúar en kom ekki þann 15. janúar eins og honum var ætlað. Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að hann fór með flugi frá Íslandi til Parísar þann 15. janúar s.l. og áfram til Riga sama dag.
Samkvæmt ákvæðum almennra hegningalaga nr. 19/1940 er að það er dómfellda að refsilausu að koma sér undan refsingu í málinu. Áreiðanlegar upplýsingar sem lögregla hefur aflað benda hins vegar til þess að maðurinn hafi notið aðstoðar erlendis frá við að komast af landi brott, m.a. með því að greitt var fyrir hann flugfargjaldið og séð um flugbókun hans frá landinu. Verður að telja að það sé brot á 112. gr. almennra hegninarlaga og varðar það sektum eða fangelsi allt að einu ári. Sá þáttur málsins mun verða rannsakaður áfram.
Þess hefur verið óskað að gefin verði út alþjóðleg handtökuskipun á hendur manninum vegna málsins en ólíklegt verður að telja að hann fáist framseldur frá heimalandi sínu sé hann þar. Hinsvegar mun verða leitað eftir milligöngu Innanríkisráðuneytis um að manninum verði gert að afplána fangavist sína í heimalandinu verði niðurstaða Hæstaréttar í samræmi við niðurstöðu héraðsdóms.
Á það hefur verið bent að farbann er á engan hátt jafn öruggt úrræði og látið hefur verið að liggja. Þetta er í annað sinn sem maður í farbanni á vegum Lögreglunnar á Selfossi fer úr landi. Árið 2007 fór pólskur maður grunaður um nauðgun úr landi. Því máli var reyndar fylgt eftir og hann dæmdur, eftir íslenskri löggjöf, í heimalandi sínu fyrir brotið.