21 Apríl 2015 21:21
Kl. 13:57 í dag var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á Biskupstungnabraut, nokkuð ofan við Borg í Grímsnesi. Lögregla, sjúkralið og slökkvilið fóru þegar á vettvang.
Árekstur varð með tveimur bifreiðum sem ekið var í gagnstæðar áttir. Erlend hjón á ferðalagi voru í öðrum bílnum og sluppu þau lítið meidd en eru þó enn til eftirlits á sjúkrahúsi í Reykjavík. Bifreið þeirra kastaðist út fyrir veginn og valt við áreksturinn. Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri sem var einn í hinni bifreiðinni slasaðist mikið og var fluttur af vettvangi með sjúkrabifreið til móts við þyrlu LHG sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Endurlífgunartilraunir sem vegfarendur, þ.m.t. ökumaður og farþegi hinnar bifreiðarinnar hófu á vettvangi og var fram haldið á leið á sjúkrahús af sjúkraliði báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn fljótlega eftir komu þangað.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með rannsókn málsins og nýtur við það aðstoðar bíltæknifræðings.
Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu