2 Janúar 2013 12:00
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur staðið í ströngu yfir hátíðirnar. Óvissustigi vegna snjóflóðahættu var lýst yfir á Vestfjörðum norðan- og sunnanverðum auk Mið-Norðurlands 27. desember. Hættustigi var lýst yfir sama dag á Ísafirði og síðar á Flateyri, Patreksfirði og Hnífsdal. Í kjölfarið var ákveðið að setja 24 tíma vakt hjá Almannavarnadeild vegna slæmrar veðurspár. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði við lokanir á vegum vegna ófærðar og auka mannskapur kallaður út hjá Fjarskiptamiðstöð. Verkefni Almannavarnadeildar snúa að samhæfingu björgunaraðila á landsvísu ásamt samskiptum við veitu- og fjarskiptafyrirtæki þar sem rafmagnsleysi er víða. Upplýsingaveita deildarinnar hefur skipað stóran sess síðustu sólahringana þar sem tilkynningar um ástand eru settar inn á vefsíðu deildarinnar. Auk þess uppfærir deildin Facebook síðu hennar reglulega og hefur það gefið góða raun.