30 Desember 2005 12:00
Samkvæmt niðurstöðum í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrot á árinu 2004 fækkaði skráðum brotum um 2,4% á síðasta ári, borið saman við árið á undan. Þegar farið er aftur til ársins 2001 kemur í ljós að hegningarlagabrotum hefur fækkað um 11% og umferðarlagabrotum um nærri 4%. Meira en 77% hegningarlagabrota voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem eru 697 brot miðað við 10.000 íbúa. Á landsbyggðinni voru sérrefsilagabrot, önnur en brot á umferðarlögum, flest á Austurlandi, eða 343, og 217 á Suðurlandi. Á árinu 2004 voru 86.967 brot skráð í málaskrá lögreglunnar.
Skýrsluna í heild er hægt að nálgast á vefsíðu ríkislögreglustjóra á slóðinni www.rls.is