19 September 2014 12:00
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni för tæplega þrítugs manns er var á ferðinni á léttu bifhjóli, sem var án skráningarmerkja. Maðurinn ók sviptur ökuréttindum og var að auki undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hans á kannabis og amfetamíni.
Annar réttindalaus ökumaður var einnig stöðvaður þar sem hann ók á móti umferðarstefnu í gegnum hringtorg. Bifreiðin sem hann ók var óskoðuð og ótryggð og voru skráningarmerki fjarlægð af henni.