18 Mars 2014 12:00
Konan sem lést í umferðarslysi í gær á Ólafsfjarðarvegi á Hámundarstaðahálsi skammt sunnan Dalvíkur hét Zofia Gnidziejko, til heimilis að Eyrarvegi 9 á Akureyri. Hún var 34 ára gömul og lætur eftir sig eiginmann og tvö börn, 4 og 10 ára. Zofia var farþegi í fólksbifreið sem lenti í árekstri við pallbíl.