31 Janúar 2014 12:00
Ríkislögreglustjóri hefur í janúar auglýst eftir 48 lögreglumönnum hjá átta lögregluembættum landsins. Um er að ræða fjölgun lögreglumanna um 44 meðal annars samkvæmt áætlun innanríkisráðherra um eflingu lögreglu og 500 milljón króna fjárveitingu í því skyni.
Auglýsingar um stöður lögreglumanna eru sem hér segir eftir lögregluembættum:Embætti ríkislögreglustjóra: auglýstar þrjár stöður lögreglufulltrúa.Lögreglustjórinn á Blönduósi: auglýst ein staða lögreglumanns.Lögreglustjórinn á Húsavík: auglýst ein staða lögreglumanns.Lögreglustjórinn á Hvolsvelli: auglýstar tvær stöður lögreglumanna.Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu: auglýstar fimm stöður rannsóknarlögreglumanna, þrjár stöður varðstjóra og 21 staða lögreglumanna, alls 29 stöður.Lögreglustjórinn á Suðurnesjum: auglýstar sjö stöður lögreglumanna.Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum: auglýstar tvær stöður lögreglumanna.Lögreglustjórinn á Seyðisfirði: auglýstar þrjár stöður lögreglumanna.
Þá verða auglýstar á næstu dögum stöður lögreglumanna við embætti lögreglustjórans í Borgarnesi, Eskifirði o.fl.
Auk þessa hefur innanríkisráðuneytið auglýst lausa til umsóknar stöðu yfirlögregluþjóns á Húsavík.
Alls verða því rúmlega 50 stöður í lögreglu auglýstar.