1 Ágúst 2013 12:00
Bílstjóri erlendrar langferðabifreiðar sem uppvís varð af því að losa úr frárennslistanki bifreiðarinnar í vegkanti við Selfoss þann 29. Júlí s.l. var yfirheyrður í, með aðstoð túlks, gær í síma. Hann viðurkenndi brot sitt og með aðstoð lögreglunnar á Egilsstöðum var honum boðið að ljúka málinu með því að gangast undir 150 þúsund króna sektargerð vegna brots á 18. gr. reglugerð um lögreglusamþykktir. Bílstjórinn féllst á þessi málalok og vildi taka sérstaklega fram hversu leitt honum þætti að þetta hafi gerst, um mistök hans hafi verið að ræða.