12 Júlí 2013 12:00
Ökumaður fólksbifreiðar var í dag sviptur ökurétti eftir að hann ók bifreið sinni á 185 kílómetra hraða á Lyngdalsheiði á leið að Laugarvatni. Nokkur umferð var þegar hraðaksturinn átti sér stað. Undanfarið hafa lögreglumenn verið við hraðamælingar á Lyngdalsheiðarvegi. Því miður eru þar of margir sem aka þar yfir leyfilegum hraða.
Öllu hægar fór ökumaðurinn sem kærður var fyrir hraðakstur á Suðurlandsvegi undir Ingólfsfjalli. Sá mældist á 114 kílómetra hraða.
Uppúr klukkan sex í morgun höfðu lögreglumenn afskipti af ökumanni sem var á akstri eftir Biskupstungnabraut við Þingvallaveg. Sá reyndist vera undir áfengisáhrifum. Hann var fluttur á lögreglustöðina á Selfossi í blóðsýnatöku. Að því loknu var hann frjáls ferða sinna. Ekki leið á löngu þar til maðurinn fór að berja á glugga lögreglustöðvarinnar og grýta hana. Maðurinn var þá handtekinn aftur og færður í fangaklefa og látinn sofa úr sér.