18 Apríl 2013 12:00
Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn á láti refsifanga á Litla-Hrauni sem lést í klefa sínum þann 17. maí 2012 og hefur ríkissaksóknari nú fengið málið til meðferðar. Rannsóknin hefur um margt verið flókin og frá upphafi hefur verið ljóst að ekki yrði að vænta samvinnu þeirra tveggja sakborninga sem grunaðir eru um að hafa valdið áverkum sem leiddu manninn til dauða. Í þágu rannsóknarinnar hefur verið leitað til ýmissa sérfræðinga um úrlausn tiltekinna atriða. Dómkvaddur var réttarmeinafræðingur til að fara yfir þau gögn sem urðu til við krufningu líksins auk annarra þátta sem varða áverka þá er leiddu til dauða mannsins. Þá voru tveir prófessorar í sálfræði dómkvaddir til að greina atferli fanga á upptökum úr öryggismyndavélum. Prófessor í verkfræði við HÍ var fenginn til að rannsaka þá krafta sem þarf til að valda þeim áverkum sem voru á líkinu. Hann mun skila skýrslu sinni til ríkissaksóknara á næstunni. Sérstakar mælingar voru gerðar á hljóðburði innan fangelsins og möguleikum vitna á að heyra það sem talið er hafa farið fram innan veggja fangaklefa hins látna. Þá var nákvæm eftirlíking klefans byggð í fullri stærð í húsnæði Lögregluskóla ríkisins þar sem Tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins sviðsetti mögulega atburðarás auk þess sem grunuðum var gefinn kostur á að lýsa atvikum í klefanum þar.
Ótiltekinn fjöldi vitna hefur nú þegar verið leiddur fyrir dóm og borið þar vitni undir nafnleynd en vitnin hafa talið að framburður þeirra um málavexti gæti sett þau í hættu á að þeim verði unnið mein vegna hans.
Rannsóknin hefur verið tímafrek en gengið vel. Ríkissaksóknari mun nú yfirfara málsgögn og eftir atvikum kveða á um frekari rannsókn einstakra þátta, telji hann þörf á því og taka málið síðan til ákærumeðferðar í samræmi við ákvæði Sakamálalaga.