12 Október 2012 12:00
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt ökumann á þrítugsaldri til ökuleyfissviptingar í 14 mánuði og til greiðslu sektar að upphæð 210.000 kr. Að auki var ökumaðurinn dæmdur til að greiða 242.187. kr. í sakarkostnað. Dóminn hlaut maðurinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í tvígang með nokkurra daga millibili.