15 Maí 2012 12:00
Árlegur fundur afbrotavarnaráða Norðurlanda var haldinn á Nesjavöllum dagana 9.-11. maí sl. og hélt embætti ríkislögreglustjóra fundinn að þessu sinni. Fulltrúar landanna gerðu grein fyrir helstu verkefnum og eða rannsóknum á sviði afbrotavarna. Var m.a. rætt um skipulagða glæpastarfsemi og áhersla lögð á að ræða 1% vélhjólagengin og önnur glæpagengi, en Danir hafa beint sjónum sínum að ungmennum, gert rannsóknir á þessum gengjum og eru með starf í gangi til aðstoða ungmenni við að yfirgefa slík glæpagengi. Greiningardeild ríkislögreglustjóra var með erindi um 1% vélhjólagengin á Íslandi og baráttu yfirvalda gegn útbreiðslu þeirra.
Þá var einnig beint sjónum að ítrekaðri afbrotahegðun. Finnar kynntu verkefni sem eru í gangi í þeirra heimalandi til að koma í veg fyrir ítrekaða ofbeldishegðun. Eitt verkefni beinist að því að hjálpa ofbeldisfullum karlmönnum á aldrinum 18-35 ára að breyta hegðun sinni, annað að aðstoða kynferðisafbrotamenn við að láta af hegðun sinni og það þriðja beinist að einstaklingum sem eru ítrekað þolendur ofbeldis. Fangelsismálastofnun á Íslandi sagði frá þátttöku sinni í Norrænni rannsókn á endurkomu fanga, en Ísland kom ágætlega út úr þeirri rannsókn í samanburði við hin Norðurlöndin. Afbrotavarnaráð Svíþjóðar (Brå) hefur beint sjónum sínum að rannsóknum á ítrekunartíðni afbrota í Svíþjóð. Meðal þess sem hefur verið birt um það efni er ítarleg rannsókn á þolendum afbrota, sem má finna á heimasíðu BRÅ, www.bra.se
Frávikshegðun barna og ungmenna var einnig rædd sérstaklega. Norðmenn leggja áherslu á mikilvægi þess að bregðast við vanrækslu barna á fyrstu stigum og hafa útbúið tveggja mínútna aðgengilegt myndband til að vekja starfsfólk sem vinna með börn til umhugsunar um vandamálið, enda vanrækt börn líklegri til að sýna frávikshegðun síðar á ævinni. Fulltrúi frá Barnaverndarstofu á Íslandi sagði frá áherslu Íslendinga á að leysa vandmál barna og fjölskyldna á heimilum þeirra með fjölþátta meðferð (e. Multisystematic Therapy). Niðurstöður þessa verkefnis voru kynntar, en einstaklingunum er fylgt eftir og athuguð ýmis frávikshegðun og hversu stór hluti ungmennanna koma við sögu lögreglunnar eftir meðferð. Fulltrúi frá Grænlandi kynnti stöðu Grænlands í tengslum við afbrot og frávikshegðun, en þar er fimm sinnum hærri afbrotatíðni en í Danmörku. Síðustu ár hafa sjónir beinst að börnum og ungmennum þar í landi og ýmis verkefni verið sett á laggirnar, m.a. til að takast á við ótímabæra þungun unglingsstúlkna.
Afbrotavarnaráðin í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð eru talsvert umfangsmikil, en ekki er starfrækt sérstakt afbrotavarnaráð í Grænlandi eða á Íslandi.
Næsti fundur verðu haldinn í Noregi vorið 2013.