23 Maí 2012 12:00
Rannsókn á láti fanga á Litla Hrauni í síðustu viku miðar áfram. Lögreglustjórinn á Selfossi hefur farið fram á að þeir tveir menn sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða mannsins verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Mennirnir tveir hafa verið leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands. Dómari tók sér frest til morguns til að úrskurða um gæsluvarðhaldskröfu lögrelgustjóra. Rannsókn málsins er mjög vandmeðfarin og er á viðkvæmu stigi. Af þeim ástæðum er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um framgang rannsóknarinnar.