3 Apríl 2012 12:00
Skömmu fyrir klukkan 18 í gær urðu lögreglumenn í umferðareftirliti varir við torfæruhjól í akstri á Eyravegi á Selfossi á móts við Tónlistaskólann. Ekkert skráninganúmer sást á ökutækinu og hugðust lögreglumennirnir hafa tal af ökumanni. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum og lagði á flótta norður yfir Ölfusárbrú og inn í Hrísmýri þar sem hann fór inn á göngustíg við steypustöðina. Ökumaðurinn stefndi inn í mýrina þar sem hann festi hjólið en hélt áfram á hlaupum. Það dugði honum ekki þar sem vel þjálfaður lögreglumaður hljóp hann uppi og handtók hjólamanninn. Grunsemdir vöknuðu um að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefna. Hann var því færður í blóðtöku. Í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili mannsins. Þar fundust tíu kannabisplöntur í ræktun. Maðurinn mun verða kærður fyrir tíu brot sem eru m.a. að hafa ekið á óskráðu og ótryggðu ökutæki, utanvegaakstur, að sinna ekki fyrirmælum lögreglu, framleiðslu fíkniefna o.fl.