4 Janúar 2012 12:00
Lögreglunni á Selfossi var í fyrradag tilkynnt um innbrot og þjófnað í sumarbústað við Sogsbakka sem stendur á milli Ljósafossvirkjunnar og Steingrímsstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Atvikið hefur átt sér stað á tímabilinu frá 18. desember síðastliðinn til 2. janúar. Þjófurinn eða þjófarnir stálu Philips flatskjá, fartölvu og ýmsum öðrum munum. Þeir fóru um bústaðinn og ollu þar nokkru tjóni á innanstokksmunum. Ógreinileg skóför voru í snjónum við húsið en fennt í þau svo líkur eru til að einhverjir dagar hafi verið liðnir frá innbrotinu þar til það uppgötvaðist. Lögreglan á Selfossi biður þá sem veitt geta upplýsingar um innbrotið að hafa samband í síma 480 1010.