1 Desember 2011 12:00
Á árinu 2009 var lokið við að innleiða skipulegan félagastuðning (peer support) innan lögreglunnar. Um þróunarverkefni er að ræða sem mun taka tíma að verða hluti af verklagi og menningu lögreglunnar. Þegar félagastuðningur var skipulagður voru lögð fram áform um að mæla streitu meðal lögreglumanna reglulega. Fyrsta streitumælingin var birt í nóvember 2008 og gáfu niðurstöður hennar mikilvæg viðmið um mögulegan fjölda einstaklinga sem eiga við vanda að stríða innan lögreglunnar. Hins vegar höfðu þjóðfélagsaðstæður breyst mikið frá því að gögnum var safnað þar til skýrslan var birt, eftir bankahrunið í október 2008. Þetta kallaði á að gerð yrði önnur könnun fyrr en síðar.
Þátttakendur voru 287 lögreglumenn á öllu landinu og svöruðu þeir spurningalistunum í vinnutíma sínum í mars og apríl 2011. Verkerkefni þetta var unnið af Tinnu Jóhönnudóttur kandídatsnema í sálfræði við HÍ og var könnunin hluti af BS verkefni hennar í sálfræði. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum rannsóknarinnar en skýrsluna má nálgast hér.