14 September 2010 12:00
Af gefnu tilefni vill embætti ríkislögreglustjóra vara við enn einni útgáfu af tölvubréfum í anda svonefndra Nígeríubréfa.
Um er að ræða tölvubréf þar sem viðtakendur eru upplýstir um að þeir hafi unnið háar fjárhæðir í svonefndu Euro Millions Lotto. Sagt er að netfang viðkomandi hafi verið dregið út.
Viðtakendur eru beðnir um að senda margvíslegar upplýsingar áður en vinningurinn verði greiddur. Slík bréf, rituð á bjagaðri íslensku, hafa verið send fólki hér á landi.
Hér er um tilraun til svika að ræða þar sem markmiðið er að hafa fé af viðtakendum.
Ríkislögreglustjóri varar fólk eindregið við að svara slíkum tölvubréfum eða að smella á vefslóðir í þeim.