23 Apríl 2010 12:00
Að morgni síðastliðins mánudags var brotist inn í íbúðarhús í Hveragerði og þaðan stolið fartölvum, sjónvarpsflakkara, myndavél og fleiri hlutum. Einu vísbendingar lögreglu voru upplýsingar nágranna sem veitti athygli bifreið sem var á ferð í götunni sem húsið stóð við. Á miðvikudag komust lögreglumenn á Selfossi á slóð bifreiðarinnar í Reykjavík. Með aðstoð lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu voru þrír menn handteknir og fluttir í fangageymslu á Selfossi. Við yfirheyrslur viðurkenndu mennirnir að hafa brotist inn í íbúðarhúsið í Hveragerði eftir klukkan átta á mánudagsmorgun og stolið fartölvum og fleiri hlutum. Þýfinu komu þeir af sér um hádegi sama dag en það var notað til greiðslu á fíkniefnum sem einn mannanna ætlaði til sölu. Við húsleit hjá þeim manni fundust 126 tilbúnir skammtar í söluumbúðum af því sem gengur undir nafninu skunkur sem er þurrkað maríjúanna. Maðurinn viðurkenndi að hafa ætlað að selja efnið. Í þessu tilviki var það nágrannavarsla sem leiddi til þess að málið upplýstist.