19 September 2009 12:00
Síðdegis í gær, föstudag, fóru lögreglumenn frá Selfossi í göngueftirlit eftir göngustíg vestan í Henglinum. Tilgangurinn var að huga að utanvegaakstri torfæruhjóla og fjórhjóla. Lögreglumennirnir gengu rúmlega sex kílómetra leið frá Bolavöllum til norðausturs um Húsmúla, Engidal og inn í Marardal. Á leið sinni til baka suðvestur úr Marardal urðu þeir varir við tvö torfæruhjól sem var ekið inn í Marardal og þar eftir og utan við göngustíg. Lögreglumennirnir snéru við og hittu á ökumennina innst inni í dalnum. Mennirnir voru kærðir og mál þeirra sent til ákæruvalds. Á svæðinu voru augljós og ljót merki um akstur torfæruhjóla og fjórhjóla. Er með eindæmum hvar menn komast á torfæruhjólum og má segja að fátt standi fyrir þeim annað en þverhníptir hamrar.