3 Júlí 2009 12:00
Lögreglan á Hvolsvelli mun verða með aukið eftirlit um helgina. TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð og mun fara með lögreglunni svæðið alla leið austur á Hornafjörð. Eftirlit verður á tjaldstæðum, hálendinu og svo í Þórsmörk. Í gær var ökumaður mældur á ferð sinni á Mýrdalssandi, á lítillri VW Polo bifreið, á 162 km hraða. Hann var sviptur ökuleyfi til 2ja mánaða og hlaut háa fjársekt. Mjög virkt eftirlit mun verða af hálfu lögreglunnar með hraðakstri, ölvunar- og fíkniefnaakstri. Vonumst við til að allir fari varlega og skili sér heilir heim að lokinni helgi.
Lögreglan Holsvelli
Myndin tekin á Kirkjubæjarklaustri að loknu eftirliti TF-Líf sumarið 2008