11 Júní 2008 12:00
Í dag tók gildi reglugerð um evrópska skotvopnaleyfið nr. 540/2008. Með gildistöku reglugerðarinnar geta handhafar skotvopnaleyfa sótt um evrópskt skotvopnaleyfi er gerir handhöfum þess kleift að fara með skotvopn sín til veiða eða stunda íþróttaskotfimi á Schengensvæðinu auk Bretlands og Írlands án þess að þurfa að sækja um sérstakt leyfi til tímabundins útflutnings vopnsins í hvert sinn. Það er þó einugis heimilt að því gefnu að notkun vopnsins sé leyfð í viðkomandi landi, dvöl vari ekki lengur en þrjá mánuði og að handhafi leyfisins geti framvísað staðfestingu á því að tilgangur dvalarinnar sé skotveiði eða íþróttaskotfimi.
Lögreglustjórar eru útgefendur evrópska skotvopnaleyfisins og skulu umsóknir berast lögreglustjóra. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á lögregluvefnum, undir liðnum eyðublöð. Með umsókn til lögreglustjóra skulu einnig fylgja tvær nýlegar passamyndir og ljósrit af skotvopnaleyfi umsækjandans.