3 Nóvember 2007 12:00

Átta norrænum félögum í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels var synjað um leyfi til landgöngu við komu sína til Keflavíkur á föstudag. Mennirnir héldu úr landi á laugardag í fylgd 16 lögregluþjóna. Þeir fóru allir til Ósló.

Með í för var eiginkona eins mannsins. Önnur kona sem var í för með eiginmanni sínum dvelst enn hér á landi. 

Mönnunum var synjað landgöngu á grundvelli c liðar 42 gr. útlendingalaga nr. 96, 2002.

Aðgerð lögregluyfirvalda vegna komu norrænna félaga í Hell’s Angels hingað til lands er ekki lokið. Fylgst verður með komuflugi til landsins um helgina sem og samkvæmi því sem vélhjólaklúbburinn Fafner-MC Iceland hafði boðað til í Reykjavík.

Embætti ríkislögreglustjóra hefur yfirstjórn aðgerðarinnar, sem er viðamikil. Framkvæmd aðgerðarinnar til þessa hefur verið í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum auk þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn frá embætti ríkislögreglustjórans taka einnig þátt í henni.