28 Janúar 2021 14:27
Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur lokið við skýrslu um hættumat vegna hryðjuverkaógnar á Íslandi. Greiningardeildin hefur reglulega frá árinu 2007 unnið sambærilegar skýrslur en meðal annars er horft til hryðjuverkaógnar í nágrannalöndum og öðrum ríkjum Evrópu þar sem sambærilegt hættumat hefur verið gert. Í meðfylgjandi skýrslu er sem fyrr einkum horft til Evrópulögreglunnar (Europol) og Norðurlanda um stöðu mála í Evrópu.
Við gerð skýrslunnar var stuðst við aðferðafærði Europol og einnig horft til þeirrar nálgunar sem samstarfsaðilar greiningardeildar á Norðurlöndum beita. Þeir áhættuvísar sem nágrannalönd okkar hafa skilgreint eru bornir saman við þær upplýsingar sem íslensk lögregla býr yfir. Jafnframt er horft til stærðar íslensks samfélags, legu landsins og annarra þátta sem eru einkennandi fyrir Ísland.
Við mat á hryðjuverkaógn á Íslandi er einnig horft til þróunar erlendis. Fyrri skýrslur greiningardeildar eru hafðar til hliðsjónar í því skyni að greina breytingar. Meðal breytinga sem greina má nú varðar óreglulega fólksflutninga. Mat á þeirri ógn hefur breyst og engin þekkt tilfelli um að hryðjuverkamenn hafi nýtt sér með skipulögðum hætti flóttamannastrauminn til að komast til Evrópu.
Almennt eru taldar litlar líkur á að hryðjuverk verði framið á Íslandi. Niðurstaða skýrslunnar er sú að hættustig sé óbreytt; í meðallagi. Meðal þess sem hefur áhrif á mat á hættustigi, eru takmarkaðar hryðjuverkavarnir hér á landi.
Ísland er friðsælasta land í heimi skv. Global Peace Index og hefur verið það í mörg ár. Í þeirri staðreynd eru fólgin margvísleg verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Flesta þá áhættuvísa sem til staðar eru í nágrannalöndum okkar, er ekki að finna hér á landi.
Nánar má kynna sér skýrslu greininardeildar hér