25 Nóvember 2020 16:21
Brot 108 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 941 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 121.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.