5 Október 2020 14:14
Brot 67 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 30. september til föstudagsins 2. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 13.548 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.