29 Nóvember 2006 12:00
Síðastliðinn sunnudag kl 11:21 kom í ljós að búið var að brjótast inn í skrifstofubyggingu við Aðalstræti í Bolungarvík. Gler í nokkrum hurðum höfðu verið brotin og farið hafði verið inn á skrifstofur á þriðju hæð. Þar inni voru talsverðar skemmdir unnar á innanstokksmunum en engu hafði verið stolið. Eftir helgina beindist grunur að ákveðnum aðila. Viðkomandi játaði við yfirheyrslur hjá lögreglu en bar fyrir sig ölvun og minnisleysi. Málið telst upplýst.