14 Október 2005 12:00
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans hefur í samvinnu við íslenskar fjármálastofnanir lagt hald á samtals 70 falsaða milljón dollara peningaseðla. Slíkir peningaseðlar hafa aldrei verið gefnir út en hinir haldlögðu peningaseðlar eru taldir vera eftirgerð 100.000 dala peningaseðla sem gefnir voru út í Bandaríkjunum árið 1928 í tengslum við sérstaka útgáfu peningaseðla, svonefnda silver certificates útgáfu.
Talið er að maður af erlendu bergi brotinn, búsettur í Bretlandi, hafi ætlað að svíkja fé út úr íslenskum bönkum með því að nota hina fölsuðu peningaseðla í viðskiptum við þá.
Hafa íslensk lögregluyfirvöld óskað eftir aðstoð breskra yfirvalda í þágu rannsóknarinnar. Vitað er um sambærilegar fjársvikatilraunir í öðrum löndum Evrópu s.s. Austurríki, Ítalíu, Bretlandi og víðar.