30 Desember 2004 12:00
Hér eru birtar upplýsingar um fjölda fíkniefnabrota á árunum 1999 til 2003 og bráðabirgðatölur fyrir árið 2004 miðað við stöðu mála í málaskrá lögreglu þann 29. 12.
Eins og fram kemur í töflu 1 hefur fíkniefnabrotum fjölgað um 17% frá því í fyrra og um tæplega 69% frá1999. Brotum vegna vörslu eða neyslu fíkniefna hefur fjölgað einna mest á tímabilinu og vegna innflutnings fíkniefna.
Tafla 1. Fjöldi fíkniefnabrota eftir tegund 1999 til 2004
2004*
2003
2002
2001
2000
1999
Dreifing, sala
112
117
70
63
46
69
Innflutningur
164
149
121
117
103
74
Varsla, neysla
1.143
947
632
593
507
693
Framleiðsla
30
31
26
14
8
7
Ýmis fíkniefnabrot
172
141
145
124
117
119
Samtals
1.621
1.385
994
911
781
962
*Bráðabirgðatölur miðað við 29. 12. 2004
Flest fíkniefnabrot komu upp um helgar á síðasta ári eða 317 á föstudögum, 314 á laugardögum og 276 á sunnudögum. Þegar litið er til einstakra brotaflokka komu flest brot vegna dreifingar eða sölu fíkniefna upp á föstudögum, vegna innflutnings á mánudögum og vegna vörslu eða neyslu fíkniefna á laugardögum
Tafla 2. Fjöldi skráðra fíkniefnabrota 2004*, eftir vikudögum
Sunnud.
Mánud.
Þriðjud.
Miðvikud.
Fimmtud.
Föstud.
Laugard.
Fíkniefni, dreifing, sala
15
7
13
9
21
33
14
Fíkniefni, framleiðsla
3
2
3
5
6
6
5
Fíkniefni, innflutningur
20
31
27
22
29
24
11
Fíkniefni, varsla, neysla
207
103
111
99
139
221
263
Fíkniefni, ýmis fíkniefnabrot
31
24
18
20
25
33
21
Alls
276
167
172
155
220
317
314
*Bráðabirgðatölur miðað við 29. 12. 2004
Mynd 1. Hlutfallsleg dreifing fíkniefnabrota 2002 til 2004* eftir mánuðum.
*Bráðabirgðatölur miðað við 29. 12. 2004
Líkt og fyrri ár komu flest fíkniefnabrot upp yfir sumarmánuðina á þessu ári. Þannig komu rúmlega 24% fíkniefnabrota upp í júlí og ágúst, rúmlega 18% árið 2003 og rúmlega 22% árið 2002.
Það sem af er árinu hafa lögregla og tollgæsla lagt hald á tæplega 16 kílógrömm af amfetamíni í 675 haldlagningum, tæplega 37 kílógrömm af hassi í 508 haldlagningum og rúmlega fimm kílógrömm af kókaíni í 91 haldlagningu. Til samanburðar má nefna að árið 2003 lögðu lögregla og tollgæsla hald á tæplega þrjú kílógrömm af amfetamíni, 55 kílógrömm af hassi og rúmlega eitt kílógramm af kókaíni.
Tafla 3. Fíkniefni sem lögregla og tollgæsla lögðu hald á frá 01.01. til 29.12. 2004
Grömm
Stykki
Fjöldi haldlagninga
Amfetamín
15.766,06
75
675
E-pillur (Ecstasy)
22,01
7.531,4
97
Hass
36.866,19
508
Heróín
0,05
1
Kannabisfræ
62,98
428
26
Kannabislauf
1.755,21
18
Kannabisplöntur
1.195
29
Kannabisstönglar
1.681,48
14,21
7
Kókaín
5.149,22
91
LSD
2.032
2
Maríhúana
2.372,91
202
Metamfetamín
303,14
5
Tóbaksblandað
291,42
361
Alls
64.270,67
11.275,61
2.022
Tafla 4. Fjöldi einstaklinga sem kærðir voru fyrir fíkniefnabrot 2001 til 2004* greint eftir kyni
2004*
2003
2002
2001
Karlar
1.006
902
726
652
Konur
155
155
103
86
Samtals
1.161
1.057
829
738
*Bráðabirgðatölur miðað við 29. 12. 2004
Á árinu var 1.161 einstaklingur kærður fyrir fíkniefnabrot á Íslandi, 1.006 karlar og 155 konur. Flestir voru með íslenskt ríkisfang eða rúmlega 94%. Mynd 2 sýnir aldursdreifingu þeirra einstaklinga sem kærðir voru. Þar kemur fram að aldursdreifing karla og kvenna er svipuð, hlutfallslegur fjöldi vex hratt í kringum 17. aldursárið en fer aftur hratt niður eftir 25. aldursárið.
Mynd 2. Aldursdreifing einstaklinga sem kærðir voru í fíkniefnabrotum 01.01. til 29.12.2004.