27 September 2004 12:00
Flugslysaæfing var haldin á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 25. september síðastliðinn. Frá embætti ríkislögreglustjóra komu fulltrúar frá almannavarnadeild, fjarskiptamiðstöð, umferðardeild, ID-nefnd, auk yfirmanna sviðs 2. Ennfremur voru Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri viðstaddir og fylgdust með æfingunni ásamt fleiri ráðherrum, flugmálastjóra auk annarra.
Starfsmenn ríkislögreglustjóra tóku þátt í undirbúningi æfingarinnar, voru beinir þátttakendur í henni auk þess sem nokkrir starfsmenn sinntu eftirliti með æfingunni og leiðbeiningum til þátttakenda meðan á henni stóð.
Þegar æfingin hófst var samhæfingarstöð almannavarna í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð virkjuð. Þar komu til starfa fulltrúar frá Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar, Neyðarlínunni, Landlækni, Rauða krossi Íslands, Vegagerðinni, Landsstjórn björgunarsveita og Flugmálastjórn auk starfsmanna á vegum almannavarnadeildar. Hlutverk samhæfingarstöðvar er að útvega aðstoð frá öðrum umdæmum, alþjóðlega aðstoð og að samhæfa aðstoð ríkisstofnana vegna áfalla.
Æfingin gekk mjög vel og var gagnleg.
Hér má finna nokkrar myndir af æfingunni.
Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri kynna sér gang mála
Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri kynna sér gang mála
Eldar slökktir
Eldar slökktir
Slösuðum bjargað úr flakinu
Slösuðum bjargað úr flakinu
Greining á meiðslum
Greining á meiðslum
Hlúð að slösuðum á vettvangi
Hlúð að slösuðum á vettvangi
Slasaðir fluttir af vettvangi
Slasaðir fluttir af vettvangi
Samhæfingarstöð almannavarna
Samhæfingarstöð almannavarna
Stjórnstöð aðgerðarstjórnar höfuðborgarsvæðisins
Stjórnstöð aðgerðarstjórnar höfuðborgarsvæðisins
Hugað að slösuðum á slysadeild
Hugað að slösuðum á slysadeild
Ljósmyndir: foto.is sf.