23 Júní 2018 13:01
Lík manns sem leitað hefur verið að í Ölfusá frá því þann 20. maí s.l. fundust fyrir landi Arnarbælis í Ölfusi í morgun. Það voru menn á göngu við ána sem fundu líkið og tilkynntu um það til lögreglu. Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Árborgar aðstoðuðu lögreglu við vinnu á vettvangi.