16 Júní 2017 09:43
Ökumaður sem mældist á 142 km hraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund var með barn í bíl sínum. Auk sektar sem hann þarf að greiða var barnaverndaryfirvöldum gert viðvart um málið.
Þessi ökumaður var einn af 29 sem kærðir hafa verið fyrir hraðakstur í umdæminu á undanförnum dögum. Hann ók þó ekki hraðast af þessum hóp því erlendur ferðamaður mældist á 163 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.
Þá voru á annan tug ökumanna handteknir vegna gruns um vímuefnaakstur og sex sektaðir fyrir að aka á negldum hjólbörðum.
Loks bar nokkuð á því að ökumenn væru að tala í síma án þess að nota handfrjálsan búnað og máttu þeir greiða sekt í samræmi við brot sín.