12 Desember 2016 12:56
Ökumaður sem ók yfir hámarkshraða á Reykjanesbrautinni aðfararnótt föstudagsins reyndist hafa fleira á samviskunni heldur en hraðaksturinn. Bifreið hans mældist á 121 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund og þegar lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við hann lagði af honum áfengislykt. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð, grunaður um ölvunarakstur. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður og nemur sektargreiðsla við brotum af því tagi sem hann varð uppvís að 150.000 krónum.
Þrír ökumenn til viðbótar voru staðnir að hraðakstri, allir á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók mældist á 144 km. hraða og hafði sá ekki náð átján ára aldri.