28 Nóvember 2016 12:41
Tvö innbrot í heimahús voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum undir helgina. Í báðum tilvikum höfðu húsráðendur verið fjarverandi um einhvern t íma. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um hversu miklu stolið var en ljóst er að um var að ræða fjármuni og skartgripi. Málin tvö eru í rannsókn.
Lögregla vill af þessu tilefni minna á mikilvægi þess að fólk gangi vel og tryggilega frá heimilum sínum áður en að heiman er haldið. Jafnframt að nágrannavarsla reynist vel og að það sé því gagnlegt að tilkynna nágrönnum um væntanlega brottför.