18 September 2016 03:07
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning, klukkan 22:55 í gærkvöld, laugardag, um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey. Erlendur karlmaður lést er hann varð fyrir bifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg. Ökumaður bifreiðarinnar var erlendur ferðamaður. Sá látni var í tíu manna hóp á tveimur bifreiðum. Bifreiðarnar voru stöðvaðar í vegkantinum og fólkið fór út úr þeim. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti slysið bar að en lögreglan á Suðurlandi rannsakar slysið og aðdraganda þess. Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom á staðinn. Þjóðveginum var lokað í um þrjár klukkustundir á meðan vettvangsrannsókn fór fram.