13 Mars 2016 05:37
Fréttatilkynning frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra
Um kl. 1:30 fékk lögreglan á Norðurlandi eystra á Akureyri tilkynningu í gegnum Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra frá íbúa fjölbýlishús í Naustahverfi um að heyrst hefðu skothvellir frá nærliggjandi íbúð.
Lögreglan ásamt sérsveitarmönnum staðsettum á Akureyri fóru þegar á staðinn og gerðar voru ráðstafanir til að fá frekari aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra og tryggja vettvang. Búið er að loka nærliggjandi götum og hafa samband við íbúa sem næst búa.
Á þessari stundu er beðið frekari liðsauka frá sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Ekki er unnt að gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu.
Viðauki við fréttatilkynningu
Kl. 5:25
Skömmu eftir komu liðsauka sérsveitar úr Reykjavík um kl. 5, var grunaður aðili handtekinn og vettvangur tryggður. Viðkomandi var færður í fangageymslu lögreglunnar á Akureyri. Verður hann yfirheyrður síðar í dag.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri mun nú hefja rannsókn á vettvangi.
Ekki er unnt að gefa frekari upplýsingar að svo stöddu.