22 Febrúar 2016 10:51
Skömmu eftir hádegi á föstudag var óskað eftir lögreglu vegna manns, vopnuðum hníf, sem braut sér, heimildarlaust, inn í hús á Hellu og hafði í hótunum við fólk. Maðurinn hvarf síðan á braut án líkamsmeiðinga. Leitað var aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra til að leita að manninum sem fannst í húsi í þorpinu. Sérsveitarmenn handtóku manninn sem veitti ekki viðnám við handtökuna. Hann var fluttur í fangageymslu á Selfossi. Við húsleit á heimili mannsins fundust 14 lítrar af landa. Maðurinn var kærður fyrir húsbrot, eignaspjöll, hótanir og áfengislagabrot. Hann var látinn laus að yfirheyrslu lokinni.
Eldur kom upp í geymslu í íbúðarhúsi að Tjaldhólum á Selfossi uppúr klukkan þrjú á laugardag. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu réði niðurlögum eldsins sem hafði ekki náð sér á strik vegna þess að rýmið var lokað og súrefni komst ekki að nema í takmörkuðu magni. Talsvert tjón varð vegna sóts en minna vegna eldsins. Grunur er um að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstengi.
Vinnuslys varð við Búrfellsvirkjun á miðvikudag. Starfsmaður verktaka missti framan af fingri þegar hann varð á milli keðja sem voru notaðar til að hífa upp lóð. Maðurinn var fluttur á Slysadeild Landspítala þar sem gert var að sárum hans.
Í síðustu viku voru 18 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Flestir á þjóðvegi 1 í Rangár- og V- og A- Skaftafellssýslum. Sá sem hraðast fór var á 137 km hraða í Eldhrauni á ísuðum vegi. Sama dag á sömu slóðum voru nokkrir til viðbótar kærðir fyrir að fara of hratt. Þetta er talsvert áhyggjuefni því þarna eru í mörgum tilvikum ökumenn sem ekki hafa reynslu af akstri í snjó og hálku. Ekki er betra þegar við bætist að ökumaður er undir áhrifum áfengis eins og sá sem var mældur á 117 km hraða austan við Hvolsvöll um kvöldmatarleytið á miðvikudag.