28 Desember 2015 08:59
Lögreglan hafði í nógu að snúast um helgina vegna tveggja hörmulegra slysa. Annars vegar manns sem leitað var að í og við Ölfusá en hefur nú verið talinn af og árekstur tveggja bifreiða í Öræfum þar sem ökumaður annarar bifreiðarinnar lést. Rannsókn beggja þessara slysa er í rannsókn.
Hollenskur ferðamaður öklabrotnaði í Skaftafelli á jóladag. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi. Lögreglumaður á Kirkjubæjarklaustri fór til að kanna aðstæður á staðnum. Í ljós kom að maðurinn hafði runnið til í hálku á veginum í þjóðgarðinum með fyrrgreindum afleiðingum.
Lögreglumaður í Vík var kallaður út seint á aðfangadagskvöld vegna tveggja ferðamanna sem höfðu lent í umferðaróhappi er bifreið þeirra lenti á vegriði vestan við Vík. Mennirnir slösuðust ekki en bifreiðin var óökufær. Aðstoða þurfti mennina við að komast í gistingu þar sem þeim var ljóst að samgöngur væru tvísýnar á þeim tíma sem þeir voru á ferðinni.
Aðfaranótt aðfangadags jóla barst lögreglu tilkynning um bifreið sem hefði farið útaf Skeiðavegi við Kílhraun. Þegar lögreglan kom á staðinn vaknaði grunur um að ökumaður hafi verið undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og færður í lögreglustöð þar sem hann var yfirheyrður. Málið er í rannsókn og bíður niðurstöðu blóðrannsóknar.
Ökumaður var handtekinn aðfaranótt þriðjudags eftir að hafa ekið á kyrrstæða bifreið við Eyraveg á Selfossi. Maðurinn reyndist ölvaður og brást illa við þegar lögreglumenn handtóku hann. Hann barðist um og reyndi að skalla lögreglumann á meðan handtökunni stóð. Við leit á manninum fannst lítilræði af kannabis. Maðurinn var færður í fangageymslu þar sem hann var látinn sofa úr sér ölvímuna og að því loknu yfirheyrður og látinn laus í framhaldi af því.