2 Nóvember 2015 09:42
Laust fyrir kl. 08:00 í morgun varð alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum fyrir botni Eskifjarðar. Þar rákust saman tvær bifreiðar, sem voru að koma úr gagnstæðri átt. Í annarri bifreiðinni voru þrír einstaklingar en tveir í hinni. Slökkvilið Fjarðabyggðar þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út úr annarri bifreiðinni. Þrír voru fluttir með sjúkrabifreiðum til aðhlynningar á sjúkrahúsi í Neskaupstað en tveir voru fluttir til skoðunnar á Heilsugæslustöðina á Eskifirði.
Ísing var á vettvangi og því mikil hálka.
Ekki er að svo stöddu hægt að greina frekar frá málinu en rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi fer með frekari rannsókn málsins.