20 Október 2015 14:29
Fréttatilkynning frá
Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra
Akureyri, 20. október 2015.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri, Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggð og Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra við sveitarfélögin um átak gegn heimilisofbeldi. Um er að ræða átaksverkefni sem hefst frá og með deginum í dag og er gert ráð fyrir að það standi í eitt ár og að árangur verði metinn að því loknu. Saman munum við vinna að þessu verkefni í samráði við hagsmunasamtök og aðra sem geta lagt verkefninu lið. Ánægjulegt að þessi sveitarfélög hafi bæst í hópinn, en áður hafði Akureyrarbær undirritað samskonar samstarfsyfirlýsingu við lögregluembættið í febrúar á þessu ári.
Markmið samstarfsins er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldismálum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og vernda börn sem búa við heimilisofbeldi.
Í heimilisofbeldismálum er mikilvægt að grípa inn í strax í upphafi máls þegar lögregla er kölluð til, því þar gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á framhald málsins. Þar opnast „glugginn“ til að aðstoða þolendur og gerendur svo og að taka málið föstum tökum og koma í veg fyrir ítrekuð brot.
Rannsóknir sýna að börn sem verða vitni að heimilisofbeldi upplifa sálrænt áfall og sýna sömu einkenni kvíða og þunglyndis og börn sem sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi. Lífsreynsla sem þessi fylgir börnum ævina á enda. Hætt er á að án utankomandi hjálpar geti hún valdið langvinnum erfiðleikum fyrir einstaklinginn.
Það að lögreglan og félagsmálayfirvöld í þessum sveitarfélögum taki höndum saman gefur skýr skilaboð út í samfélagið „um að ofbeldi á heimilum sé ekki liðið“ og gerir okkur sterkari í að takast á við þetta verkefni þannig að það skili meiri árangri.