13 Júní 2015 15:22
Vegurinn rétt vestan við Hellnar er lokaður vegna umferðarslyss. Bifreið valt á veginum og tveir voru fluttir suður með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Annar þeirra er með höfuðárverka en hinn virtist minna slasaður. Vegurinn verður lokaður næstu stundirnar á meðan rannsókn stendur.