2 Júní 2015 21:23
Um þrjúleytið í dag bárust lögreglu tvær tilkynningar um hugsanlega skothvelli í íbúð fjölbýlishúss í Hlíðarhjalla Kópavogi.
Brugðist var strax við, og var sérsveit ríkislögreglustjóra send á vettvang. Í kjölfarið var götum í nágrenninu lokað og íbúar hvattir til að vera innandyra.
Aðgerðum á vettvangi er nú að ljúka en lögreglan fór inn í íbúðina á níunda tímanum í kvöld og var skotvopn og skotfæri haldlögð. Enginn reyndist vera inni í íbúðinni en ekki er vitað hvort að um raunverulega skothvelli hafi verið að ræða. Þess ber að geta að Lögreglan fór á sama vettvang í gær en þá fundust ummerki um að hleypt hafi verið úr haglabyssu á grindverk utan við húsið.
Lögreglan ítrekar mikilvægi þess að slíkar tilkynningar séu teknar alvarlega og farið sé með gát þegar grunur leikur á að um skothvelli sé að ræða í íbúabyggð. Sérsveit ríkislögreglustjóra stýrði aðgerðum á vettvangi en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sá um lokanir á svæðinu.