2 Mars 2015 15:43
Eins og vikan á undan þá var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni, þó var einhver erill í byrjun vikunnar sökum þess veðurs sem þá gekk yfir Eyjarnar. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og engin teljandi útköll á öldurhús bæjarins.
Tvö eignaspjöll voru kærð til lögreglu í liðinni viku og áttu þau sér bæði stað á veitingastaðnum Lundanum. Í fyrra tilvikinu var um rúðubrot að ræða og náðist sá sem braut rúðuna og viðurkenndi hann verknaðinn. Í seinna tilvikinu var um að ræða skemmdir á inni á salerni þar sem m.a. ljós var brotið og hilla rifin niður. Vitað er hver þarna var að verki og eru bæði málin í rannsókn.
Af umferðarmálum er það að frétt að einn ökumður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var einn ökumaður stöðvaður þar sem hann hafði ekki ökuréttindi á það ökutæki sem hann ók. Einn ökumaður var sektaður þar sem hann var ekki með öryggisbeltið spennt í akstri og þá liggur fyrir ein sekt vegna vöntunar á skráningarnúmeri.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku og var í öðru tilvikinu um að ræða snjóruðningstæki sem fór utan í bifreið en í hinu tilvikinu var um að ræða árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Heiðarvegar og Vestmannabrautar. Engin slys urðu á fólki og minniháttar tjón á bifreiðum.