Lögreglustjóri ber ábyrgð á að jafnlaunakerfi embættisins standist lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Hann ber einnig ábyrgð á jafnlaunastefnu og að þeim lagalegu kröfum og öðrum kröfum sem tengjast jafnlaunakefinu sé framfylgt. Yfirlögregluþjónn er tilnefndur fulltrúi lögreglustjóra varðandi jafnlaunakerfi og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012. Jafnlaunastefnan nær til alls starfsfólks.10
Jafnlaunastefna lögreglustjórans á Austurlandi byggir á sanngirni og virðingu fyrir starfsfólki embættisins sem metið er að verðleikum.
Markmið með jafnlaunastefnunni er að allt starfsfólk verði metið eftir hæfni og frammistöðu, þannig að hæfileikar þess og færni fái notið sín og að þeim verði greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir starfsmenn óháð kyni. Starfsmönnum skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum, ef þau kjósa svo.
Embættið greiðir laun á grundvelli kjara- og stofnanasamninga. Launaákvarðanir eru skjalfestar, rökstuddar og undirritaðar af lögreglustjóra.
Jafnlaunastefnan er órjúfanlegur hluti af launastefnu embættisins.
Til að treysta framkvæmd og stefnu embættisins í málaflokknum og treysta undirstöður þess, skuldbindur embættið sig til að:
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi á rýmingarsvæðum á Seyðisfirði frá klukkan 14:00 í dag. Öllum rýmingum á Seyðisfirði hefur því verið aflétt. Íbúum á rýmingarsvæðum er óhætt að snúa heim og starfsemi hjá fyrirtækjum á rýmdum svæðum má hefjast að nýju. ... Sjá meiraSjá minna
Veðurstofa ritaði stuttan pistil um ástand mála í Neskaupstað og afléttingu rýminga. Áhugavert, sjá hér: ... Sjá meiraSjá minna
Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi á rýmingarsvæðum í Neskaupstað frá klukkan 12:00 í dag. Öllum rýmingum í Neskaupstað hefur því verið aflétt. Íbúum á rýmingarsvæðum er óhætt að snúa heim og starfsemi hjá fyrirtækjum á rýmdum svæðum má hefjast að nýju.
Verið er skoða stöðuna á Seyðisfirði. Gera má ráð fyrir að rýmingum þar verði aflétt síðar í dag.
... Sjá meiraSjá minna