![Mynd](https://dev.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/01/1_nordurljos.jpg)
Lögreglustöðin á Vopnafirði
Lónabraut 2
690 Vopnafjörður
Þjónustusími: 444 0610
Netfang: austurland@logreglan.is
Fax: 444 0601
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Veðrið hefur leikið við Austfirðinga síðustu daga og margir ferðalangar í fjórðungnum að njóta með heimamönnum. Þá er Vopnaskak á Vopnafirði sem laðar að sér fjölda gesta.
Af þessum sökum meðal annars hafa umferðarteppur gert vart við sig í umdæminu þar sem engar hafa áður verið. Tjaldsvæði eru nýtt sem aldrei fyrr, helstu ferðamannastaðir vel sóttir og baðstaðir. Þá hafa kylfingar þyrpst á golfvelli fjórðungsins. Er þá fátt eitt upp talið.
Engin stór mál hafa komið upp þrátt fyrir þennan fjölda fólks. Lögregla hefur því notið þess að fylgjast með mannlífinu og njóta veðurs ekki síður en aðrir. Verður vonandi svo áfram.
Meðfylgjandi eru myndir frá Vopnafirði og Reyðarfirði þar sem reynt er að fanga stemningu dagsins. Fleiri myndir kunna að bætast í hópinn.
... Sjá meiraSjá minna
stuð á Eskifirði :) www.facebook.com/share/p/8SgEbGPB8WW9R8kd/?mibextid=WC7FNe
Lögreglan á Austurlandi sinnir árlegu hálendiseftirliti um þessar mundir, m.a. við Kverkfjöll, Öskju, Holuhraun, Herðubreiðalindir, Fljótsdalsheiði, Möðrudalsöræfi og víðar. Fylgst er utanvegaakstri, kannað með ökuréttindi og ástand ökumanna, ásamt því að sinna útköllum og aðstoða ferðalanga ef svo ber undir. Eftirlit þetta er liður í sýnileika lögreglu og þjónustu við þá fara um hálendið. ... Sjá meiraSjá minna
Flottir.
Meðfylgjandi eru helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi fyrstu sex mánuði ársins, bornar að sama tímabili árin 2015 til 2023. Tölurnar sem um ræðir tengjast markmiðum/viðmiðum er embættið setti í stefnumörkun ársins og finna má á vef lögreglu.
Hegningarlagabrot, – Fjöldi skráðra hegningarlagabrot eru fleiri í ár en sem nemur meðaltali frá árinu 2015. Þau eru jafnmörg og árið 2020.
Skráðum/tilkynntum auðgunarbrotum og kynferðisbrotum fjölgar milli ára. Fjöldi ofbeldisbrota er svipaður milli ára en eignaspjöllum fækkar.
Umferðarlagabrot, –Skráð umferðarlagabrot eru lítið eitt undir meðaltali frá árinu 2015.
Ölvunarakstursbrotum fjölgar en fjöldi annarra brota er lítið eitt undir meðaltali, svo sem hraðakstur, fíkniefnaakstur og sviptingarakstur/réttindaleysi.
Fíkniefnabrot, – Skráð fíkniefnamál/-brot eru nálægt meðaltali frá 2015.
Umferðarslys, – Skráð slys eru umtalsvert færri en þau voru á síðustu tveimur árum. Þau eru svipuð að fjölda og árin 2019 til 2021. (Tölur ekki tiltækar fyrir fyrstu sex mánuði árin 2015 til 2018.)
Heimilisofbeldi, – Fjöldi skráðra heimilisófriðarmála í ár eru svipuð að fjölda og síðustu tvö ár. Þau eru nokkru færri en árin 2020 og 2021. (Ágreiningur / heimilisofbeldi.)
Tölur lögreglu má finna hér;
... Sjá meiraSjá minna