Lögreglan á Vestfjörðum
Aðalstræti 92
450 Patreksfirði
Beinn sími: 444 0430
Þjónustusími allan sólarhringinn: 444 0400
Netfang: vestfirdir@logreglan.is
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0400 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Er lögreglustarfið eitthvað sem gæti heillað þig, eins og okkur hin sem þar eru ?
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknarferli í lögreglunámið, sjá nánar í meðfylgjandi leiðbeiningum.
... Sjá meiraSjá minna
Umsóknarferlið | Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar
— Svona sækirðu um Umsóknarferlið Fyrstu skrefin Sótt er um á heimasíðu Háskólans á Akureyri (HA) um nám í lögreglufræðum fyrir verðandi lögreglumenn, ...Hvar sækir maður um ? 🤔 Ekki hægt að opna linkinn
Af verkefnum liðinnar viku.
Á undanförnum dögum hafa lögreglumenn í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum sinnt fjölbreyttum verkefnum.
Í forvarnarskyni hefur fræðsluefni og viðbragðsáætlunum verið dreift til allra skólastofnana, auk þess sem lögreglan hefur sinnt, eins og hægt er, forvarnafræðslu í ýmsa grunn- og leikskóla svæðisins.
Viðbragðsáætlanir þessar varða viðbrögð fullorðinna og ekki síst starfsfólks skólastofnana ef tilkynnt er um ofbeldisatvik, s.s. hnífaburð, kynferðisofbelti eða ofbeldi að öðru tagi. Þar er símanúmer Neyðarlínunnar, 112, mjög mikilvægt.
Fjölmargar tilkynningar bárust lögreglu á tímabilinu. Þar má nefna skemmdarverk í Bolungarvík þar sem stungið var á alla fjóra hjólbarða bifreiðar. Það mál er til rannsóknar og þiggur lögreglan allar upplýsingar sem kunna að vera til staðar um geranda eða gerendur.
Þá var kvartað yfir ónæði af flugeldum sem skotið var í miðbæ Ísafjarðar. Rétt er að minna á að skv. gildandi reglugerð er notkun flugelda stranglega bönnuð nema á tímabilinu 28. desember til og með 6. janúar ár hvert.
Vegna krapaflóðs, sem féll yfir Djúpveg við Sauðagil í Standabyggð aðfaranótt 15. janúar, var veginum lokað tímabundið meðan mat á frekari flóðahættu og hreinsun stóð yfir. Flóðið var um 7–8 metra breitt.
Fjöldi atvika tengd umferð var einnig skráð hjá lögreglu í liðinni viku. Ökumaður misti stjórn á bifreið sinni og rann hún út af vegi við Gillastaði á Vestfjarðavegi. Þjónustuaðili úr Búðardal fór á vettvang og aðstoðaði. Annað svipað atvik átti sér stað við Hríshól í Reykhólasveit þar sem ferðalangar lentu í vandræðum á bifreið sinni, sem rann út af veginum, en nálægir björgunarsveitamenn komu þeim til aðstoðar.
Þá akstur bifreiðar, sem ekki hafði verið færð til lögbundinnar skoðunar. Skráningarnúmer hennar voru fjarlægð og ökumanni gert að hætta akstri.
Fíkniefni fundust á vinnustað á Patreksfirði og var þeim skilað til lögreglu. Mikilvægt er að koma upplýsngum um fíkniefni til lögreglunnar. Það má annað hvort gera með því að hafa beint samband við næstu lögreglustöð eða með því að hringja í upplýsingasíma lögreglu, á landsvísu, sem er 800 5005. Fullri nafnleynd er heitið.
Á Ísafirði var tilkynnt um dauðan fugl og brugðist var við í samræmi við verklagsreglur; fuglinn var sendur til Náttúrustofu Vestfjarða til frekari skoðunar. Það er MAST (Matvælastofnun) sem hefur með að gera tilkynningar og úrvinnslu þegar grunur er um smitsjúkdóma í fugldýrum.
Að lokum má nefna að skemmtanahald í umdæminu fór að mestu leyti vel fram um helgina.
Lögreglan vill jafnframt minna á mikilvægi þess að fara með gát þegar kveikt er í brennu. Brennur stærri en einn rúmmetri eru leyfisskyldar.
Lögreglan vill hvetja þá ökumenn sem áforma að fara milli byggðalaga og sérstaklega landshluta að athuga vel veðurspá og aðstæður á vegum. Það má gera t.d. á vefsiðunni umferdin.is en einnig á vedur.is. Hvatt er til þess að vegfarendur reyni að fara á milli staða á þjónustutíma Vegagerðarinnar að vetri til, enda má búast við lokunum vega án mikils fyrirvara, sérstaklega undir bröttum hlíðum og eins á fjallvegum.
Þjónustutíma Vegagerðarinnar má finna á korti sem sést hér umferdin.is/kafli/90615 (músabendlinum er þrýst á tilgreindan vegakafla og koma þá nánari upplýsingar þar fram).
Förum með gát.
... Sjá meiraSjá minna
Djúpvegur: Súðavík - Hjallar — Umferðin
Upplýsingar um færð á vegumEnnþá er verið að skjóta stórum sprengjum í Aðalstrætinu, á kvöldin, í hádeginu bara whenever. Krakkar að kveikja í og henda svo flugeldum undir bíla, í ruslatunnur og nú síðast í áttina að gangandi fólki. Hundaeigendur þora varla með hundana út í göngu á kvöldin vegna þessa. Búið að vera hvert einasta kvöld síðan á þrettándanum amk. Vonandi er verið að gera eitthvað meira í þessu en að minna bara á lögin, sem er greinilega ekki verið að fylgja.
“Fugldýrum.” Ætti það ekki frekar að vera “Flugdýrum.” ??
Vakin er athygli á slæmri veðurspá næstu sólahringa. Búast má vaxandi vindi í kvöld, föstudag, í nótt og hríðarveðri á morgun. Einnig er gert ráð fyrir hvassvirðri á sunnudag og fram á mánudag en minni úrkomu, skv. núgildandi veðurspám.
Þeim sem hyggja ferðir milli byggðarlaga er sem fyrr bent á umferdin.is/ fyrir færð á vegum og vedur.is/ fyrir veðurhorfur.
... Sjá meiraSjá minna