![Mynd](https://dev.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/01/1_vestfirdir.jpg)
Lögreglan á Vestfjörðum
Skeiði 2
510 Hólmavík
Beinn sími: 444 0410
Þjónustusími allan sólarhringinn: 444 0420
Netfang: vestfirdir@logreglan.is
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0400 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Mikil úrkoma í kortunum.
Lögreglan á Vestfjörðum vill vekja athygli á viðvörun frá Veðurstofu Íslands. Sérstaklega varðandi sunnnanverða Vestfirði.
Förum með gát.
blog.vedur.is/ofanflod/?
... Sjá meiraSjá minna
Ofanflóð | Bloggsíður Veðurstofu Íslands
blog.vedur.is
Seyðisfjörður og Eskifjörður – 8. nóvember Skráð þann 8. nóvember 2023 kl. 11:50 Höfundur: Jón Kr Svara Veðurhorfur næstu daga Veðurspáin gerir ráð fyrir úrkomu á bæði Seyðisf...
Veðurviðvörun - auknar líkur á aurskriðum.
Lögreglan á Vestfjörðum vill vekja athygli á slæmri veðurspá næstu tvo sólarhringana. Gul veðurviðvörun er í gildi, aðallega á sunnan og norðanverðum Vestfjörðum.
Spáin gerir ráð fyrir því að úrkoman verði einna mest á svæðinu frá Reykhólum og að Látrabjargi/Patreksfirði.
Vegfarendur sem ætla að aka milli landshluta eru hvattir til að gæta að veðurspá og veðuraðstæðum inn á umferdin.is Eins að gera viðvart í síma Vegagerðarinnar, 1777 ef vart verður við grjóthrun á vegi.
www.vedur.is/vidvaranir
... Sjá meiraSjá minna
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
www.vedur.is
© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuv...Frábært 🤦🏻♀️
Lögreglan á Vestfjörðum - þátttaka í orkuskiptum
Nú hefur lögreglan á Vestfjörðum tekið í notkun Teslu Y bifreið sem er staðsett á Patreksfirði. Sú bifreið hefur uppkallsnúmerið 231.
Um er að ræða nýja rafmagnsbifreið sem kemur í stað eldri lögreglubifreiðar sem knúin var með díselvél.
Fyrr á þessu ári var Tesla Y bifreið tekin í notkun á norðanverðum Vestfjörðum, n.t.t. á Ísafirði.
Áætlanir eru um að taka í notkun þriðju Tesluna sem myndi verða staðsett á Hólmavík.
Meðfylgjandi mynd var tekin á dögunum af nýju lögreglubifreiðinni á fögrum sumardegi í Vesturbyggð.
... Sjá meiraSjá minna
Er hún ekki knúin rafmótor sem knúinn er af rafmagni framleiddu með díselolíu🤔
Fjóra mánuði ársins þarf að kynda húsin með díselolíu vegna raforkuskorts hérna fyrir vestan þannig að þetta er sýndarmennska. Rafmagnið sem notað á þennan bíl sem og aðra þýðir bara meiri olía í húshitun á veturna.
Frábært, til hamingju með það😎
Þetta hlýtur að vera plat, það hefur ekki verið fagur sumardagur í Vesturbyggð í allt sumar 😂
Mér sýnist þurfa endurnýja vælubílinn líka á svæðinu,, spurning um aðra Teslu…. Til hamingju! 😎
Eiga vegirnir á Vestfjörðum að vera ngu góðir firir tesllu, eða á bara að vera eftir lit á sumrin og í þurgi?
Hver er drægni þessa bíla? Er hætta á að bílarnir verði rafmagnslausir við að elta uppi afbrotamenn? 🤓