Lögreglan á Vestfjörðum
Aðalstræti 92
450 Patreksfirði
Beinn sími: 444 0430
Þjónustusími allan sólarhringinn: 444 0400
Netfang: vestfirdir@logreglan.is
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0400 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Vestfirðir - fíkniefnamál.
Síðdegis miðvikudaginn 27. nóvember sl. handtók lögreglan á Vestfjörðum tvo einstaklinga sem voru að koma akandi frá höfuðborgarsvæðinu til Ísafjarðar. Grunur hafði vaknað um að aðilarnir væru með fíkniefni í fórum sínum.
Aðilarnir voru færðir á lögreglustöðina á Ísafirði og framkvæmd var leit í bifreið þeirra og á þeim sjálfum. Fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Vestfjörðum, Krummi, aðstoðaði við leitina. Vandlega falin fíkniefni fundust við leitina. Um var að ræða kannabisefni og kókaín í nokkru magni.
Aðilunum var sleppt að yfirheyrslum loknum. Ekki liggur fyrir játning um að efnin hafi verið ætluð til dreifingar en efnismagnið bendir til þess gagnstæða.
Lögreglan á Vestfjörðum vill nota tækifærið og hvetja alla sem búa yfir upplýsingum eða hafa grun um fíkniefnameðhöndlun að koma ábendingum um það til lögreglunnar. Það er hægt að gera með því að hringja í 112 og biðja um lögregluna á Vestfjörðum, eða með því að hringja í 4440400.
Þá er hægt að hringja í upplýsingasíma lögreglunnar, nafnlaust, sem er 800 5005 eða leggja inn skilaboð, sjá hlekkinn hér að neðan.
... Sjá meiraSjá minna
Almannavarnir á Vestfjörðum
Nú stendur yfir námskeið á Hólmavík fyrir björgunarsveitafólk, slökkviliðsmenn og lögreglumenn í Strandasýslu og Reykhólahreppi sem hafa boðist til að skipa vettvangsstjórn almannavarna á svæðinu.
Vettvangsstjórn er bakland þeirra viðbragðsaðila sem eru í lífsbjargandi aðgerðum á vettvangi svo sem ef slys ber að höndum eða samhæfa þarf viðbragð margra viðbragðseininga vegna annarra alvarlegra verkefna.
Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum er staðsett á Ísafirði og er bakland vettvangsstjórna eins og nú verður skipuð í Strandasýslu og Reykhólahreppi.
Til eru tvær aðrar vettvangsstjórnir á Vestfjörðum. Önnur er með staðsetningu á sunnanverðum Vestfjörðum og hin á norðanverðum Vestfjörðum.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum fékk starfsfólk almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra til að halda námskeiðið.
Fyrir áhugasama er hér hlekkur á upplýsingar um hlutverk vettvangsstjórna, aðgerðastjórna og samhæfingu miðstöðvar www.almannavarnir.is/almannavarnarstig/
... Sjá meiraSjá minna
Borgarísjaki út af Vestfjörðum.
Tilkynnt hefur verið um borgarísjaka vestur af Vestfjörðum. Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard hefur varað sjófarendur við honum.
En einnig, að ósk lögreglunnar á Vestfjörðum, fór LHG í eftirlitsflug yfir jakann í gær og annes á Vestfjörðum til að ganga úr skugga um að enginn hvítabjörn hefði tekið sér far. Svo reyndist ekki vera.
... Sjá meiraSjá minna
Var ekki enginn hvítabjörn? Það þýðir að að það sé hvítabjörn.
Alltaf sama Dramað .
Hvaða hvaða..... ein bangsi.😘😶🌫️
Datt það í hug þegar ég sá sel í grynningu að borða fugl í gær. ♡♡