Helstu verkefni á Suðurlandi dagana 15. til og með 21 mars 2021
Vegna eldgoss sem hófst í Geldingadölum á Reykjanesskaga s.l. föstudagskvöld fóru lögreglumenn á Suðurlandi til vinnu við lokanir á Suðurstrandavegi og voru við þá vinnu …
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Vegna eldgoss sem hófst í Geldingadölum á Reykjanesskaga s.l. föstudagskvöld fóru lögreglumenn á Suðurlandi til vinnu við lokanir á Suðurstrandavegi og voru við þá vinnu …
//English below// //Polski poniżej// Vísindaráð almannavarna hittist á stuttum fundi í hádeginu í dag vegna jarðskjálfta og innskotavirkni á Reykjanesskaga. Farið var yfir þá jarðskjálfta …
//English below// //Polski poniżej// Vísindaráð almannavarna fundaði á fjarfundi í dag til að ræða jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Fundinn sátu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, …
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
Hlíðarvegur 16,
860 Hvolsvöllur
Skrifstofa lögreglustjóra er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 til 15:00 en á föstudögum frá kl. 9:00 til 13:00
Sími: 444 2000
Netfang: sudurland@logreglan.is
Fax: 444 2009
Lögreglustjóri umdæmisins: Kjartan Þorkelsson
Frá því á föstudag í síðustu viku eru skráð þrettán umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Í þremur af þessum umferðaróhöppum var um slys á fólki að ræða. Að auki voru tvö vélsleðaslys skráð.
Þrátt fyrir oft á tíðum víðsjárverðar akstursaðstæður síðustu daga hafa 27 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var á 148 km/klst hraða á Suðurlandsvegi í Eldhrauni.
Fimm ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og að auki tveir, grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Síðustu daga hafa verið þungatakmarkanir á vegum og lögregla því haldið uppi eftirliti þeim tengdum. Tveir voru kærðir fyrir að vera með ökutæki sín of þung og að auki kært fyrir ranga notkun á ökuritum.
Sérstök áhersla hefur verið á ökumenn sem stunda akstur í atvinnuskyni en til þess þurfa ökumenn að gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir slíkt brot.
... Sjá meiraSjá minna
Ótrúlega mikið af slysum undanfarið hér á Suðurlandi. Mig langar að nefna það að margir ljósastaurar við þjóðveginn virðast vera með sprungnar ljósaperur, getur lögreglan þrýst á Vegagerðina að sinna þessu betur? (ég er ekki að segja að þetta sé megin orsök slysa, heldur er þetta eitthvað sem ætti að vera í lagi því til einhvers eru þessir ljósastaurar settir upp í upphafi.)
Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsvegar og Þórsmerkurvegar á öðrum tímanum í dag. Um að ræða árekstur smárútu og tveggja fólksbifreiða. Alls voru 16 manns í slysinu. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Slysið er til rannsóknar hjá lögreglu.
... Sjá meiraSjá minna
Rúta valt á Suðurlandsvegi neðan við Hveradali. 20 manns voru í rútunni, erlendir ferðamenn, en allir sluppu óslasaðir.
Tilkynning um slysið barst klukkan 09:38 og var hópslysaáætlun virkjuð.
Búið er að koma öllum farþegum rútunnar í skjól í Hellisheiðarvirkjun, þangað sem önnur rúta sækir þá.
Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi.
Mikil hálka er á vettvangi og eru ökumenn hvattir til að aka gætilega.
... Sjá meiraSjá minna